Barnanöfn

Veljið nafnið
saman.

Barnanöfn er íslenskt barnanafnaapp sem hjálpar þér að finna nöfn, vista uppáhald og bera saman listann þinn við maka eða vin.

Sækja í App Store ↗Sækja á Google Play ↗

Ókeypis niðurhal · Kaup innan apps fyrir fullan aðgang

Hvað er innifalið? ↓
Nafnið Aagot í Barnanöfn appinu með hjarta til að vista í uppáhald
Nafnaskoðun í appinu

Leit, uppáhald og sameiginleg nöfn.

Leitaðu að nöfnum

Leitaðu að nafni eða þrengdu leitina eftir stafafjölda, atkvæðum, upphafs- og endastaf eða íslenskum stöfum.

Haltu utan um uppáhaldið

Vistaðu nöfn, raðaðu listanum og flokkaðu í „Uppáhalds“, „Kannski“ og „Ólíkleg“. Prófaðu samsetningar með öðru nafni og eftirnafni.

Berið saman listana

Tengstu valfélaga og berðu saman uppáhaldsnöfn. Að sjá nöfn valfélaga og sameiginleg uppáhald krefst fulls aðgangs.

Svona lítur appið út.

Sækja appið ↗
Barnanöfn appið: Leita og sía nöfn
Leita og sía nöfn
Barnanöfn appið: Skoða nöfn og velja uppáhald
Skoða nöfn og velja uppáhald
Barnanöfn appið: Skoða vinsældir nafna
Skoða vinsældir nafna

Skjámyndir úr iPhone útgáfu Barnanöfn. Útlit og aðgangur að einstökum eiginleikum geta verið mismunandi eftir útgáfu.

Ókeypis og fullur aðgangur

Ókeypis að byrja

Sæktu appið og kynntu þér nafnavalið áður en þú ákveður hvort þú viljir fullan aðgang.

  • Leita og skoða nöfn.
  • Vista takmarkaðan fjölda uppáhaldsnafna.
  • Prófa hluta nafnatölfræðinnar.

Fullur aðgangur

Keyptur með eingreiðslu innan apps. Verð og nánari upplýsingar birtast áður en þú kaupir.

  • Vista ótakmörkuð nöfn.
  • Finna nafnasamsetningar og skoða nafnatölfræði án ókeypis takmarkana.
  • Sjá nöfn valfélaga og sameiginleg uppáhaldsnöfn.
  • Tengdur valfélagi fær einnig fullan aðgang.

Upplýsingar yfirfarnar 21. október 2026 með hliðsjón af appinu og verslunarsíðum. Núverandi verð og kaupaskilmálar eru sýndir í appinu og appaversluninni.

Spurt um appið

Er Barnanöfn fyrir bæði iPhone og Android?

Já. Barnanöfn er fáanlegt fyrir bæði iPhone og Android. Sæktu appið hér: App Store og Google Play. Athugaðu samhæfni tækisins á verslunarsíðunni.

Hvernig tengjum við nafnalistana okkar?

Hvort ykkar tengir sitt símanúmer í appinu. Annað sendir tengibeiðni á símanúmer valfélagans og hitt samþykkir. Sjá skref fyrir skref.

Er appið það sama og nafnalistinn á vefnum?

Vefurinn hjálpar þér að skoða nöfn. Í appinu geturðu vistað og raðað eigin lista og tengst valfélaga. Leitin á vefnum flytur ekki lista sjálfkrafa í appið.

Hver stendur að Barnanöfn?

Bjarki Kjartansson þróar Barnanöfn. Appið er skráð undir Bjarki Kjartansson í App Store og b4k software á Google Play. Fyrirspurnir: [email protected]. Persónuverndarupplýsingar appsins eru á verslunarsíðunum.

Sæktu Barnanöfn

Byrjið á nöfnunum sem ykkur líkar. Leyfið listanum að breytast.

Sækja í App Store ↗Sækja á Google Play ↗